Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 18. mars næstkomandi kl 13:00.
Keppt verður í flokki hestfolalda og merfolalda og fær folald sýningarinnar hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.
Uppboð folatolla verður á sínum stað og verða boðnir upp tollar undir frábæra stóðhesta, frekar auglýst síðar.
Skráning er hafin; vinsamlegast sendið á netfangið topphross@gmail.com
Nafn folalds, nafn móður og föður folalds, litur, eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald er 2500 krónur, leggja inn á reikning 0545-26-3615, kt: 640269-6509 og senda kvittun á topphross@gmail.com með nafni folalds sem skýringu.
Undanfarin ár hafa komið fram folöld á þessari sýningu sem farið hafa í háa dóma og verður spennandi að sjá folöldin þetta árið.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Kynbótanefndin.