Að gefnu tilefni þá viljum við árétta að einungis félagsmenn Sörla sem hafa keypt sér aðgang að reiðhöllinni eiga rétt á að nýta sér hana. Stranglega bannað er að lána lykla milli manna.
Ennfremur bendum við félagsmenn á að kynna sér reglur varðandi aðgangslykla og umgengnisreglur reiðhallarinnar.
Aðgangslykill – gjaldskrá gildir frá janúar 2018 til janúar 2019
Aðgangslykill: Til að fá aðgang að reiðhöll þarf að leigja aðgangslykil kr. 1000 skilagjald sem er endurgreitt þegar lyklinum er skilað.
Auk þess þarf að greiða aðgang:
- Aðgangslykill 1 veitir aðgang að reiðhöllinni frá kl. 08:00 til 00:00. Verð kr. 20.000. Ef fleiri en tveir aðilar tilheyra sömu rekstrareiningu eða fjölskyldu nægir að kaupa tvo lykla. Sama gildir fyrir aðgangslykil 2.
- Aðgangslykill 2 veitir aðgang að reiðhöllinni frá kl. 14:00 til 00:00. Verð kr. 3.000
- Aðgangslykill 3 gildistími einn mánuður, veitir aðgang að reiðhöll frá kl. 07:00 – 00:00. Verð kr. 5.000
Um helgar er aðgangur opinn öllum lykilhöfum frá kl. 08:00 til 00:00
Athugið: Einungis skuldlausir félagsmenn hafa kost á að kaupa aðgangslykla að reiðhöll félagsins.
Reglur um notkun reiðhallar
- Umsjónarmaður reiðhallar sér um skipulagningu tíma og gætir þess að upplýsingar liggi fyrir í reiðhöll og á vef félagsins.
- Óheimilt er að skipuleggja kennslu hópa á tímum sem höll er auglýst opin til almennrar notkunar.
- Félaga í Sörla er heimilt að njóta leiðsagnar í einstaklingskennslu á opnum tíma án þess að lokað verði fyrir notkun annarra á sama tíma.
- Notkun reiðhallar annarra atburða, s.s. móta, sýninga og kennslu, verður skipulögð í samráði við umsjónarmann og skal þess gætt að slíkt sé auglýst á vef félagsins undir hnappnum Sörlastaðir og í reiðhöll.
- Knöpum er skylt að nota hjálm í reiðhöll. Á þetta við um alla, atvinnu- og áhugamenn.
Almennar reglur í reiðhöll
- Hjálmaskylda er í reiðsal.
- Láta vita af sér áður en teymt er inn á völlinn.
- Farið á bak og af baki inn á miðjum velli, en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
- Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð.
- Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar og þá skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.
- Tvær hestlengdir skulu ávallt milli hesta.
- Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar.
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.
- Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf hest er best að gera slíkt inni á miðjum velli.
- Hringtaumsvinna fer engan veginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema um annað sé sérstaklega samið.
- Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum og forðast skal að ríða þvert fyrir aðra knapa.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hest þar.
- Hundar eru stranglega bannaðir inn í reiðhöllinni.
- Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
- Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð.
- Knapar skulu ganga vel um reiðsalinn og hirða skit upp eftir sinn hest.
- Börn yngri en 13 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni.