Árs- og uppskeruhátíð fullorðinna 2024

Dansskór og partýgalli 

laugardaginn 9. nóvember 2024 kl. 00:00

Kæru Sörlafélagar og vinir

Árs- og uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Sörla verður haldið í veislusal Hauka, Ásvöllum, þann 9. nóvember.

Húsið opnar kl. 18 og borðhald hefst kl. 19.

Lux veitingaþjónusta verður með dýrlegan mat fyrir okkur.

Veislustjórn verður í höndum Bryndísar Ásmundsdóttur.

Hljómsveitin Mannamót leikur fyrir dansi.

Miðaverð fyrir mat og ball 12.500 kr. á mann.

Miðapantanir á skemmtinefnd@sorli.is (nafn, sími og fjöldi miða).

Skemmtinefndin hvetur Sörlafélaga að fjölmenna og draga vini sína með.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Kveðja Skemmtinefndin

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Skemmtun
Hvenær:
Hvar:
Næsta nágrenni
Hver:
Skemmtinefnd hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann 5. september 2024