Sunnudaginn 16. febrúar kl.15:20 ætlum við að skella okkur saman í Laugarásbíó og sjá hestamyndina “Sigurvilji” sem framleidd er af Áslaugu Pálsdóttur og Guðrúnu Hergils Valdimarsdóttur undir merkjum HEKLA FILMS
Æskulýðsnefnd Sörla býður öllum ungum Sörla krökkum á sýninguna á sunnudag.
Myndin fjallar um feril hins magnaða hestamanns og tamningameistara Sigurbjörns Bárðarsonar sem er einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Sigurvilji varpar ljósi á mikinn sigurvegara, dýravin og baráttumann sem hefur áratugum saman verið í fremstu röð af eigin verðleikum. Saga Sigurbjörns er stórbrotin og hefur veitt mörgum innblástur til að láta ekki deigan síga og gefast ekki upp þótt á móti blási.
Við höfum boðið fleiri ungum knöpum úr hestamannafélögunum í nágrenninu að slást í för með okkur og því gæti orðið mikið fjör næsta sunnudag í Laugarásbíói.
Nauðsynlegt er fyrir Sörla krakka að skrá sig í gegnum tölvupóstinn aeskulydsnefnd@sorli.is í síðasta lagi laugardaginn 15. febrúar kl. 23:59.
Miðað er við ca. 8 ára aldur og uppúr - foreldrar eru velkomnir með (en greiða fyrir sinn miða sjálfir).
Sjáumst í Laugarásbíó næsta sunnudag!