Árs- og uppskeruhátíð Sörlafólks 2025

Verðlaun fyrir árangur 

Kæru félagar.

Mikil gleði ríkti á Árs- og uppskeruhátíð félagsins sem haldin var um helgina og verðlaun voru veitt fyrir glæsilegan árangur ársins.

Hátíðin fór fram í nýja veislusalnum okkar að Sörlastöðum, mættu tæplega 150 manns. Regína Ósk sá um veislustjórn og skemmti okkur með söng og allskyns skemmtilegheitum. Hljómsveitin Glymskrattarnir lék svo fyrir dansi.

Það er mál manna að hátíðin hafi verið mjög glæsileg og skemmtileg og nýji veislusalurinn okkar frábær.

Veitt voru verðlaun fyrir árangur ársins 2025.

Íþróttafólk Sörla

Íþróttakarl Sörla Ingibergur Árnason

Íþróttakona Sörla er Ylfa Guðrún Svafarsdóttir

Knapi Sörla í áhugamannaflokki er Darri Gunnarsson

Knapi Sörla í ungmennaflokki er Sara Dís Snorradóttir
2. verðlaun ungmennafokki Fanndís Helgadóttir
3. verðlaun ungmennaflokki Kolbrún Sif Sindradóttir

Efnilegasta ungmenni Sörla er Fanndís Helgadóttir

Nefndarbikarinn í ár hlaut Skemmtinefndin.

Hæst dæmdu hross í fullnaðardóm ræktuð af Sörlafélögum

Hæst dæmdi 4 vetra stóðhesturinn með einkunnina 8,03, aðaleinkunn án skeiðs 8,37.
er Ljúfur frá Miklaholti ræktaður af Þór Kristjánssyni.

Hæst dæmdi 5 vetra stóðhesturinn með einkunnina 8,08, aðaleinkunn án skeiðs 8,42
er Ás frá Áslandi ræktaður af Kristínu Þorgeirsdóttur og Þorgeir Jóhannessyni.

2. sæti 5 vetra stóðhestar með einkunnina 7,98, aðaleinkunn án skeiðs 8,03
er Adrían frá Strönd II ræktaður af Antoni Haraldssyni.

Hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn með einkunnina 8,42
er Kjarval frá Skíðbakka ræktaður af Jóni Svavari V. Hinrikssyni og Erlendi Árnasyni.

Hæst dæmdi 7 vetra stóðhesturinn með einkunnina 8,49, aðaleinkunn án skeiðs 8,66
er Illugi frá Miklaholti ræktaður af Þór Kristjánssyni.

2. sæti 7 vetra stóðhestar með einkunnina 8,38
er Silfurtoppur frá Reykjavík ræktaður af Herði Jónssyni og Ernu Sigríði Ingvarsdóttur.

Hæst dæmda 4 vetra hryssan með einkunnina 8,29, aðaleinkunn án skeiðs 8,64
er Heba frá Ragnheiðarstöðum ræktuð af Helga Jóni Harðarsyni.

2. sæti 4 vetra hryssur með einkunnina 8,11, aðaleinkunn án skeiðs 8,20
er Snörp frá Húsanesi ræktuð af Sigurgeiri Kristgeirssyni.

3. sæti 4 vetra hryssur með einkunnina 7,96
er Sverta frá Þórustöðum ræktuð af Völku Jónsdóttur.

Hæst dæmda 5 vetra hryssan með einkunnina 7,92 aðaleinkunn án skeiðs 8,14
er Sóldís frá Miðdalskoti ræktuð af Rósbjörg Jónsdóttir.

Hæst dæmda 6 vetra hryssan með einkunnina 8,83
er Hetja frá Ragnheiðarstöðum ræktuð af Helgi Jón Harðarson.

2. sæti 6 vetra hryssur með einkunnina 8,28, aðaleinkunn án skeiðs 8,66
er Þöll frá Ragnheiðarstöðum ræktuð af Helga Jóni Harðarsyni.

3. sæti 6 vetra hryssur með einkunnina 8,19
er Blökk frá Þjórsárbakka ræktaður af Haraldi Þorgeirsyni.

Hæst dæmda 7 vetra hryssan með einkunnina 8,16, aðaleinkunn án skeiðs 8,53
er Áttund frá Stafholti ræktuð af Páll Jóhann Pálsson og Guðmunda Kristjánsdóttir

Hæst dæmda hrossið í kynbótadómi ræktað af Sörlafélaga árið 2025 er stóðhesturinn Illugi frá Miklaholti með einkunnina 8,66

Hæst dæmda hross í kynbótadómi í eigu Sörlafélaga árið 2025 er hesturinn Dalvar frá Efsta-Seli með einkunnina 8,99

Sérstök verðlaun

Verðlaun fyrir framúrskarandi ræktun fékk ræktunarbúið Ragnheiðarstaðir.

Verðlaun fyrir heimsmeistaratitla 2025 fékk Ísak frá Þjórsárbakka en hann varð heimsmeistari í töltu og fjórgangi ungmenna með knapa sínum Védísi Huld Sigurðardóttur.

Framtíðin hjá Sörla er björt.

Áfram Sörli

Stjórn, framkvæmdastjóri og skemmtinefnd Sörla

Hér að neðan eru myndir af þeim sem mættu og tóku við verðlaunun sínum.

Íþóttakona Sörla er Friðdóra Friðriksdóttir
Íþóttakarl Sörla er Ingibergur Árnason og Íþróttakona Sörla er Ylfa Guðrún Svafarsdóttir, fulltrúar tóku við verðlaununum þeirra.
Knapi Sörla í ungmennaflokki er Sara Dís Snorradóttir, önnur er Fanndís Helgadóttir en hún var einnig valin efnilegasta ungmennið og þriðja Kolbrún Sif Sindradóttir
Áhugamaður Sörla Darri Gunnarsson
Skemmtinefnd hlaut nefndarbikarinn

Hér að neðan má sjá myndir af verðlaunaafhendingu fyrir kynbótahross hryssur og hestar í 1.-3. sæti.

Þau hlutu verðlaun fyrir 5 vetra stóðhesta
Ásbjörn fékk verðlaun fyrir hæst dæmda hross í kynbótadómi í eigu Sörlafélaga og Þór fékk verðlaun fyrir hæst dæmda hross ræktað af Sörlafélaga
Ræktunarbúið Ragnheiðarstaðir fékk verðlaun fyrir framúrskarandi ræktun og Ísak frá Þjórsárbakka fékk verðlaun fyrir heims