Mikið hefur verið um framkvæmdir á svæðinu okkar í sumar og haust fyrir utan framkvæmdir við nýja reiðhöll.
Sem betur fer fer þeim að ljúka.
Enn er unnið að göngubrúargerðinni á skógarhringnum, göngubrúin var hýfð á uppsteyptu sökklana í gær. Enn er töluverð frágangsvinna eftir. Verkið hefur gegnið vel en eitthvað hægar en gert var ráð fyrir í upphafi. En á eftir að klára brúnna sjálfa, setja ljósastaura og klára að ganga frá jarðraski og keyra ofaníburð í reið- og göngustíga. Ekki er komin endanleg dagsetning á verklok.
Landsnet lýkur vinnu sinni nú á næstu dögum og fjarlægja þeir þá öll skilti og annað sem þeim fylgir við reiðvegina okkar, en þá á eftir að klára frágang á svæðinu í kringum lagnaleiðirnar og spennivirkið.