Hátíðartölt Sörla 2024
Hátíðartöltið fer fram á morgun 28. desember þar sem veðurspáin er hagstæð. Mótið hefst kl 13:30.
Vakin er athygli á að mótið er opið mót.
Tekið verður á móti skráningum samdægurs milli kl 11:30-12:30 í dómpalli. Skráningargjald er kr. 3000 pr. skráningu en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Keppt verður á beinni braut í eftirtöldum flokkum:
Flokkur 15. ára og yngri
Flokkur 16. - 21. árs
Kvennaflokk
Karlaflokk
Verðlaunaafhending fer fram eftir mót í reiðhöllinni hjá Sindra Sigurðssyni, Fluguskeiði 2 þar sem í boða verða léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá sem flesta,
Kristján Jónsson,
Mótsstjóri