Nú styttist í opnun á nýju reiðhöllinni okkar og stefnum við á að vígja reiðhöllina 4. júní næstkomandi. Okkur langar að hvetja alla virka Sörlakrakka (polla, börn, unglinga og ungmenni) sem hafa tök á að vera með í opnunaratriðinu að hafa samband við yfirþjálfara sem fyrst.
Atriðið verður riðið á feti svo ættu því allir að geta verið með, hvort sem það eru teymdir pollar eða ríðandi. Okkur langar að hafa sem flesta krakka með í atriðinu til að sýna okkar flottu yngri kynslóð sem stendur sig svo vel.
Hestarnir þurfa að vera hreinir, velhirtir og snyrtilegir og knaparnir í keppnisjakka/dökkri yfirhöfn og reiðbuxum.
Þeir sem hafa tök á og áhuga að vera með vinsamlegast sendið tölvupóst á astakara91@gmail.com
Bestu kveðjur,
Ásta Kara
yfirþjálfari