Mánudaginn 20. janúar verður haldið Sportfengsnámskeið fyrir mótshaldara.
Námskeiðið er frítt, fer fram á teams og þurfa áhugasamir að skrá sig fyrir 17. janúar. Linkur verður sendur á alla skráða þátttakendur.
Hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á mótamálum og vilja starfa við mót að skrá sig og auka þannig þekkingu sína.
Búast má við að mótahald aukist hjá okkur bæði á keppnisvöllum og í nýrri reiðhöll og þá verður gott að hafa marga með þessa þekkingu.
Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í Sörla.
Hér er hægt að lesa auglýsingu LH í heild sinni og skrá sig á námskeiðið.