Kæru félagsmenn!
Enn og aftur berast kvartanir til okkar vegna knapa sem fara um merkta göngustíga á hestum sínum, þetta virðist alltaf gerast á svipuðum tíma. Nú hafa borist kvartanir yfir hófaförum og hrossaskít á göngustígnum í Gráhelluhrauni.
Þið sem eruð að fara um þessa stíga vinsamlegast hættið því, þetta er svo mikill óþarfi, en eflaust eru þetta örfáir aðilar sem koma óorði á alla hina sem virða þessar reglur.
Það er ljóst að ef að við erum að berjast fyrir því að á okkur sé hlustað og að við fáum að vera óáreitt á okkar æfingasvæði þ.e.a.s á Skógarhringnum og Hraunhringum þá þurfum við haga okkur vel og fara ekki um merkta gönguslóða í upplandi bæjarins
Við megum fara um alla slóða á Bleiksteinshálsi. Á hæðini á milli Hlíðarþúfna og Hvaleyravatns eru frábærir slóðar sem allir mega fara um en að sjálfsögðu þarf að gæta að öðrum vegfarendum og taka fullkomið tillit til allra sem stunda útivist. Eitthvað hefur verið um að göngufólk hafi haldið að ríðandi umferð megi ekki fara þarna um en það er algjör misskilningur. Allir þessir slóðar, sem hjólandi og gangandi eru einnig að nýta sér, eru tilkomnir vegna ríðandi umferðar þarna um holtið síðastliðna áratugi. Þarna er því öllum frjálst að njóta sinnar útivistar.
Einnig megum við fara um Stórhöfðastíg, en einungis í blíðskapar og þurru veðri því það er algör sparileið.
Sýnum tillit og förum ekki um á hestum á merktum gönguleiðum. Það er okkur öllum til heilla.
Höfum gaman í Sörla í sátt og samlyndi.