Verkleg kennsla helst óbreytt

Snertilaus íþrótt 

Hestamennskan er jú snertilaus íþrótt og enginn sameiginlegur búnaður, því getum við haldið áfram þrátt fyrir hertar sóttvarnaraðgerðir.

Reiðmennskuæfingar fyrir börn, unglinga og fullorðna, Knapamerki 1, Pollanámskeið og Kvennaæfingarnar verða kennd áfram og Sjálfstyrkinganámskeiðið hefst fimmtudaginn 8. apríl.

Almenna reglan okkar núna í reiðhöllinni er sú að á reiðgólfi mega vera 4 inni í einu, var það ákveðið vegna slysahættu og til að auka vinnufrið, en það mega vera fleiri inni á skipulögðum æfingum með reiðkennara, en aldrei fleiri en 10 einstaklingar með kennara.

Til sambandsaðila ÍSÍ

Reykjavík, 24. mars 2021

Ágætu félagar!

Meðfylgjandi er ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi á miðnætti og gildir til 15. apríl nk. Stjórnvöld munu endurmeta stöðuna eftir því sem efni standa til á gildistíma hennar.

ÍSÍ birti eftirfarandi frétt á heimasíðu sambandsins rétt í þessu:

Vegna hópsýkinga og fjölgunar á Covid-19 smitum í samfélaginu þá hafa stjórnvöld gripið til hertra sóttvarnaaðgerða.
Hópsýkingarnar eru allar af völdum breska afbrigðis kórónaveirunnar sem er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og veldur frekar alvarlegum veikindum. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að hertar aðgerðir taki nú til barna allt frá grunnskólaaldri þar sem sýnt þykir að breska afbrigðið veldur meiri einkennum hjá eldri börnum en önnur afbrigði veirunnar.

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt nýja reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem tekur gildi á miðnætti og mun gilda í þrjár vikur eða til 15. apríl.  Helstu þættir sem varða íþróttastarfið eru eftirfarandi:

Nándarregla verður áfram tveir metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir. Börn í leikskólum eru undanþegin tveggja metra reglunni og fjöldatakmörkunum.

  • Almennar fjöldatakmarkanir miðast við 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.

  • Sund- og baðstaðir verða lokaðir.

  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar verða lokaðar.

  • Íþróttir barna og fullorðinna, þar með taldar æfingar og keppni innan- eða utandyra, sem krefjast meiri nálægðar en tveggja metra á milli einstaklinga eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.  

Sjá nánar reglugerð heilbrigðisráðuneytis:

Reglugerð heilbrigðisráðuneytis sem gildir frá 25. mars 2021

Við bíðum frekari útlistana varðandi íþróttastarfið.  ÍSÍ mun boða til fundar með sambandsaðilum ÍSÍ, mögulega með stuttum fyrirvara, um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.

 

Með kveðju,

ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS