Aðalfundur Hestamannafélagsins Sörla 2024

Sörlastaðir 

þriðjudaginn 24. september 2024 kl. 20:00
Hestamannafélagið Sörli
Myndmerki Hestamannafélagsins Sörla

Verður haldinn þriðjudaginn 24. september kl. 20:00 í glerskálanum hjá Íshestum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.

KAFFIHLÉ

7. Kosning formanns.
8. Kosning þriggja (af sex) manna í stjórn.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
12. Önnur mál sem félagið varðar.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Aðalfundur
Hvenær:
Hvar:
Næsta nágrenni
Hver:
Stjórn Sörla hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann 5. september 2024