Verður haldinn þriðjudaginn 4. október 2022 kl. 20:00 að Sörlastöðum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
KAFFIHLÉ
7. Kosning formanns.
8. Kosning þriggja (af sex) manna í stjórn. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
11. Önnur mál sem félagið varðar.
Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.
Stjórn Sörla