Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2022 - Opið mót - Síðasti skráningardagur í dag mánudag

Íþróttamót Sörla 

fimmtudaginn 12. maí 2022 kl. 00:00

Hafnarfjararmeistaramót Sörla 2022 verður haldið dagana 12.-15. maí á Hraunhamarsvellinum.

Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla 2022 verður haldið dagana 12.-15. maí á Hraunhamarsvellinum.

Síðasti skáningadagur er í dag mánudaginn 9. maí til miðnættis.

Mótið verður opið öllum keppendum.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.

Skráning á mótið er hafin á Sportfeng og stendur til miðnættis mánudaginn 9. maí stundvíslega klukkan 23:59 eftir þann tíma verður ekki tekið við skráningum.

Þar sem ekki er hægt að skrá polla yngri en 9 ára í Sportfeng, viljum við biðja ykkur að senda okkur nafn polla og nafn hests á motanefnd@sorli.is og taka from hvort pollinn verði ríðandi eða teymdur.

Sjálfboðaliða vantar að sjálfsögðu fyrir mótið, áhugsamir sendi tölvupóst á motanefnd@sorli.is

Keppnisgreinar eru eftirfarandi :

· Meistaraflokkur: Tölt T1, Tölt T3, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fjórgangur V2, Fimmgangur F1, Fimmgangur F2, Gæðingaskeið PP1

· 1 flokkur: Tölt T3, Tölt T4, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2. Gæðingaskeið PP1

· 2 flokkur: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5, Fimmgangur F2

· Ungmenni: Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1, Fimmgangur F1,  Gæðingaskeið PP1.

· Unglingar: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Fjórgangur V5.

· Börn: Tölt T3, Tölt T7, Fjórgangur V2, Fjórgangur V5.

· 100 m skeið P2.

· Pollar: Boðið verður upp á pollaflokk

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

· Barnaflokkur : 4000 kr.

· Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og Unglingaflokkur: 5000 kr.

· Meistaraflokkur og Ungmennaflokkur: 5500 kr.

· Gæðingaskeið – 5000 kr 

· 100m skeið – 3500 kr

Sörlafélagar þurfa að hafa greitt félagsgjöldin sín til að hafa keppnisrétt á mótinu.

Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á motanefnd@sorli.is

Dagskrá verður auglýst síðar.

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Hestamannamót
Hvenær:
Hvar:
Hraunhamarsvellinum og Að Sörlastöðum
Hver:
Mótanefnd hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann 1. nóvember 2023