Minnum á aðalfund Hestamannafélagsins Sörla 2024 í kvöld

Sörlastaðir 

þriðjudaginn 24. september 2024 kl. 20:00
Hestamannafélagið Sörli
Myndmerki Hestamannafélagsins Sörla

Minni á aðalfundinn í kvöld 24. september 2024 kl. 20:00. Hann verður haldinn í glerskálanum hjá Íshestum. Hvetjum alla til að mæta.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.

KAFFIHLÉ

7. Kosning formanns.
8. Kosning þriggja (af sex) manna í stjórn.
9. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
12. Önnur mál sem félagið varðar.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla