2025-04 Stjórnarfundur Sörla

Ýmislegt er nú rætt og skrafað 

1. Laun þjálfara, umræða vegna erindi frá Skattinum  

Skatturinn sendi bréf til stjórnar varðandi að skoða að breyta verktakagreiðslum þjálfara í greidd laun, bera fyrir sig að það sé einhver brotalöm í skilum á tekjuskatt og tryggingagjaldi.

2. Erindi frá félagsmanni

Sörlafélaginn og presturinn Stefán Már Gunnlaugsson óskar eftir að fá að blessa nýju reiðhöllina við vígslu hennar tók stjórn vel í þá beiðni.

3. Fjáröflunarnefnd staða

Vinna stendur yfir að klára fá samstarfsaðila og nafn á nýju reiðhöllina

4. Mótamál

Rætt um að ljúka að fá aðila til að hafa yfirumsjón með Hafnafjarðarmeistaramóti 2025 en það er eina mótið sem er ólokið að fá mótstjóra keppnisárið 2025 hér á Sörlavelli.

5. Ístölt og almennar útreiðar á Hvaleyrarvatni

Erindi sent um að fá að halda mót og kom til baka að senda betri útfærslu á viðburði sem var gert og ekki kom neitt svar frá bænum þannig að þetta féll um sjálf sig, en ákveðið að halda þessu til streitu.

6. Frá Framkvæmdastjóra

a. Erindi frá Reiðveganefnd

Reiðveganefnd sendi erindi varðandi að bæta lýsingu á reiðvegum okkar og óskar stjórn að nefndin taki þetta áfram og kostaðar greini

b. Battar í reiðhöll

Hefja á þá vinnu og verkferla, búið að halda einn fund með þeim sem ætla að fara fyrir þessari vinnu.

c. Stofnbúnaður í reiðhöll

Búið að senda erindi um að ljúka þeirri vinnu sem fyrst enda stutt í vígslu

d. Þorrablót

Undirbúningur í fullum gangi allt að verða klárt fyrir 25. janúar.

e. Eigur félagsins

Af gefnu tilefni vill stjórn biðja alla félagsmenn að vera vakandi fyrir eigum félagsins, fara vel með þá og ganga frá þeim á viðeigandi hátt eftir notkun þannig að ekki hljótist tjón af.

Félagsskapur eins og okkar lifir á framlögum félagsmanna, fyrirtækja, annara stuðningsaðila og Hafnarfjarðarbæ og oft þarf að hafa mikið fyrir öflun tekna. Það er því grátlegt að sjá eigur félagsins skemmast vegna slæmrar umgengni.

 

7. Önnur mál

Hugmynd um að hafa vegg fyrir Hollvini Sörla í nýju reiðhöllinni.

Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 22:30