30 stunda heitavatnslokun

Heitavatnslaust 

Fréttatilkynning frá Veitum:

Kæri viðskiptavinur,
Lokað verður fyrir heitt vatn í þínu hverfi frá klukkan 02:00 aðfaranótt þriðjudagsins 18. ágúst til klukkan 09:00 miðvikudaginn 19. ágúst.

Lokunin mun því vara í um 30 klukkustundir og ná yfir allan Hafnarfjörð, hluta Garðabæjar, efri byggðir Kópavogs og Norðlingaholt í Reykjavík.

Ítarlegt kort sem hægt er að stækka kortið til að sjá einstaka götur og húsnúmer má finna hér: https://www.veitur.is/truflun/heitavatnslokun-a-hofudborgarsvaedinu-hafnarfjordur

Nánari upplýsingar um framkvæmdina ásamt ítarefni eru aðgengilegar hér: https://www.veitur.is/framkvaemdasja/heitavatnslokun-a-hofudborgarsvaedinu-18-19-agust

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Starfsfólk Veitna

Við erum Veitur

Við sinnum hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu á Suður- og Vesturlandi. Við önnumst einnig þjónustu við viðskiptavini Hitaveitu Mosfellsbæjar.

Þjónustuver okkar er opið alla virka daga kl. 8:30 - 16:30 og þjónustuvakt allan sólarhringinn í síma 516 6000.​