Á 54. ÍBH þingi fengu fimm Sörlafélagar viðurkenningar fyrir frábær störf fyrir félagið. Það voru þau Ásta Kara Sveinsdóttir, Anna Björk Ólafsdóttir, Snorri Dal, Helgi Jón Harðarson og Darri Gunnarsson .
Ásta Kara Sveinsdóttir
Ásta Kara hefur um árabil unnið að kennslu og þjálfun yngri flokka, kennt Knapamerkjanámskeið fyrir alla aldurshópa og verið sérlega virk í félagsstarfi Sörla. Það var því Hestamannafélaginu Sörla sérstök ánægja þegar hún tók við starfi yfirþjálfara Sörla haustið 2024 og hefur hún leitt það starf afskaplega vel með skapandi hugsun, skipulagningu og af miklum metnaði. Ástríða hennar fyrir kennslu og bættri reiðmennsku skilar sér svo sannarlega til félagsmanna á öllum aldri.
Anna Björk Ólafsdóttir
Anna Björk hefur til margra ára verið einn af okkar óþreytandi sjálfboðaliðum í hinum mörgu og misjöfnu verkefnum. Framlag hennar til kennslu og þjálfunar hjá Hestamannafèlaginu Sörla hefur verið mikið og m.a. hefur hún unnið að kennslu og þjálfun á Reiðmennskuæfingum Sörla allt frá upphafi. Hún tók því virkan þátt við þróun þessa frumkvöðlaverkefnis sem í dag er orðið fastur þáttur í vetrarstarfi Sörla. Reiðmennskuæfingar Sörla njóta sífellt meiri vinsælda vegna þess hversu vel hefur gengið og hversu mikil fagmennska er viðhöfð.
Snorri Dal
Snorri hefur verið mjög virkur við ráðgjöf, kennslu og þjálfun fyrir Hestamannafélagið Sörla. Snorri hefur m.a. starfað við kennslu Reiðmennskuæfinga hjá Sörla frá upphafi. Hann hefur einnig verið virkur við kennslu fyrir unga keppnisknapa og fl. Hann tók því virkan þátt við þróun og útfærslu þessara nýju áherslna sem hófust fyrir nokkrum árum og hafa litað vetrarstarf Sörla s.l. ár.
Helgi Jón Harðarson
Helgi Jón hefur verið ómetanlegur stuðningur við Hestamannafélagið Sörla og er of langt mál að fara yfir hvert og eitt þeirra. Eitt af stærstu og mikilvægustu verkefnunum sem hann hefur styrkt á s.l. árum er sérstakur styrkur til uppbyggingar Félagshúss Sörla þar sem ungum knöpum sem hafa ekki bakland í hestamennsku er gefið tækifæri til ástundun íþróttarinnar. Að auki er Helgi Jón virkur í Kynbótanefnd Sörla sem stendur fyrir hinum ýmsu skemmtilegu viðburðum til fjáröflunar til góðra verka fyrir félagsmenn.
Darri Gunnarsson
Darri hefur verið Hestamannafélaginu Sörla mikill stuðningur á margan hátt. Hann er virkur og farsæll íþróttamaður sem hugar að hestaíþróttinni á margvíslegan hátt. Hann gaf m.a. Sörla startbása fyrir skeið sem var frábær viðbót við mótahald Sörla. Startbásarnir breyta skeiðkeppninni þar sem félagið er stórhuga og hefur þá framtíðarsýn að auka enn frekar virkni á svæðinu. Darri er einnig virkur við sjálfboðaliðastörf við mót, alltaf boðinn og búinn að aðstoða af fullum krafti.
Hestamannafélagið Sörli þakkar þessum dugmiklu félagsmönnum fyrir frábær störf fyrir félagið.