Aðalfundur Hestamannafélagsins Sörla

Á Sörlastöðum 

Verður haldinn þriðjudaginn 23.mars kl. 20:00 að Sörlastöðum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.

KAFFIHLÉ

7. Frambjóðendakynning
8. Kosning formanns.
9. Kosning fjögurra (af sex) manna í stjórn (þrír til tveggja ára og einn til eins árs) Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega.
11. Önnur mál sem félagið varðar.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla