Allt íþróttastarf fellur niður

Hertar sóttvarnir 

Sóttvarnarlæknir hefur sent heilbrigðisráðherra nýjar hertar sóttvarnartillögur sem ráðherra hefur samþykkt. Sjá frétt á vef Stjórnarráðs Íslands 

Því þarf að fella niður allt íþróttastarf félagsins, bæði hjá börnum og fullorðnum. Nýju reglurnar taka gildi 31. október 2020 og gilda til 17. nóvember 2020.

Frá og með morgundeginum (31. október) fellur því allt íþróttastarf niður.

Yfirþjálfari félagsins mun senda út tilkynningu um frekara fyrirkomulag.