Árs- og uppskeruhátið Sörla 2021

Mannfagnaður 

Kæru Sörlafélagar og aðrir góðir kúrekar!

Nú er loksins komið að því að við getum fjölmennt og skemmt okkur saman á gamla mátann og því ekki seinna að vænna en að blása til veislu eins og sönnu Sörlafólki sæmir! Við gleðjumst og höldum Árs- og uppskeruhátíð félagsins sem verður án nokkurs vafa eftirminnilegasta skemmtun seinni ára!

Herlegheitin munu fara fram laugardaginn 6. nóvember í glæsilegu húsnæði Golfklúbbs Garðarbæjar (GKG) og verða veitingarnar svo sannarlega ekki af verri endanum (við erum að tala um þriggja rétta dæmi!). Veislustjórn verður í höndum hins eina og sanna Sörlafélaga og yfirþjálfara Hinriks Sigurðssonar og mun partý-hljómsveitin Brot af því besta sjá um að halda öllum vel við efnið á dansgólfinu!
Uppboð verður á folatollum og öðrum spennandi munum ásamt skemmtiatriðum.

Húsið opnar kl 17:00 með fordrykk og píanóleik. Borðhald og skemmtun mun svo hefjast á slaginu 18:30 og
hljómsveitin byrjar að spila kl 21:00.

Miðaverð er 9500 kr en einnig verður hægt að kaupa miða eingöngu á ballið sem kostar 4000 kr (hleypt inn kl 21:00). Þetta verður ógleymanleg kvöldstund sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Ath. takmarkaður miðafjöldi í boði - svo fyrstur kemur fyrstur fær!

Hægt er að tryggja sér miða með því að senda póst á skemmtinefndsorla@gmail.com með nafni, símanúmeri og fjölda miða.

Afhending miða verður svo auglýst síðar.

Nú er tími til að dusta rykið af kúrekastígvélunum, hattinum og draga fram partýgallann!

Hlökkum til að sjá ykkur ! 
Skemmti- og fjáröflunarnefnd Sörla

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Skemmtun og Mannfagnaður
Hvenær:
Hvar:
Næsta nágrenni
Hver:
Skemmtinefnd og Stjórn Sörla hafa umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann