Árs- og uppskeruhátíð barna og unglinga

Verðlaun fyrir árangur 

Árs- og uppskeruhátíð barna- og unglinga var haldin í gærkvöldi. Yfir 50 börn og unglingar mættu og skemmtu sér svo sannarlega vel. Prettyboitjokko hélt uppi stuðinu ásamt því sem farið var í leiki og haft gaman saman.

Sörli er stoltur af öllu því frábæra unga fólki sem stundar hestamennsku á svæðinu. Allt eru þetta frábærar fyrirmyndir sem svo sannarlega kunna að skemmta sér fallega í sannri gleði.

Sörli veitti að vanda unga íþróttafólkinu sínu verðlaun fyrir góða frammistöðu á árinu.

Í barnaflokki stóðu efst 

Knapi Sörla í barnaflokki er Una Björt Valgarðsdóttir
2. verðlaun Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir
3. verðlaun Elísabet Benediktsdóttir

Í unglingaflokki stóðu efst

Knapi Sörla í unglingaflokki er Fanndís Helgadóttir
2. verðlaun Kolbrún Sif Sindradóttir
3. verðlaun Snæfríður Ásta Jónasdóttir

Verðlaun fyrir ástundun í yngri flokkum

Árlega er síðan kosinn áhugasamasti unglingurinn en þau verðlaun eru veitt fyrir dugnað, áhuga, framfarir og það að vera góð fyrirmynd í hestamennsku. Að þessu sinni hlaut Helgi Freyr Haraldsson þá viðurkenningu.

Um leið og að við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju þökkum við öllum fyrir komuna. Að auki langar okkur að þakka öllu unga fólkinu okkar fyrir að gera félagsstarf Sörla jafn innihaldsríkt og skemmtilegt og það er í dag. Sörli er svo sannarlega félag sem sameinar kynslóðir. Það er svo sannarlega skemmtilegt að sjá reiðgöturnar fullar af hressum krökkum strax á haustdögum.

Áfram Sörli

Knapi Sörla í barnaflokki er Una Björt Valgarðsdóttir, sem var fjarverandi 2. verðlaun Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir 3. verðlaun Elísabet Benediktsdóttir
Knapi Sörla í unglingaflokki er Fanndís Helgadóttir 2. verðlaun Kolbrún Sif Sindradóttir, sem var fjarverandi 3. verðlaun Snæfríður Ásta Jónasdóttir
Verðlaun fyrir ástundun í yngri flokkum Helgi Freyr Haraldsson