Betri hliðin á Maríu Júlíu Rúnarsdóttur

Betri hliðin 

 

Fullt nafn: María Júlía Rúnarsdóttir

Gælunafn: Maja snögga

Aldur: Má spyrja konu að þessu?

Búseta: 210 Himnaríki

Fjölskylduhagir: Gift honum Kára mínum og við eigum fullt af börnum, tengdabörnum, hund og 2 hross

Starf: Lögfræðingur

Stjörnumerki: Naut = þrjóskari en andskotinn og amma hans

Fyndnasti Sörlafèlaginn: Klárlega framkvæmdarstýran og gjaldkerinn eftir að ég hef komið í þær smá víni

Hnakkur? Já mér þykir betra að hafa hnakk

Pulsa eða pylsa: pulsa auðvitað! Helst hjá Villa pulsu á pulsuvagninum í Keflavík

Samsung eða Iphone: Þekki ekkert annað en Iphone

Besta hross sem þú hefur farið á: Ég hef sko fengið að prófa Spari Brúnku :-)

Sefur þú hægra eða vinstra megin í rúminu? Hægra megin

Merar eða geldingar? Maður getur ekki gert upp á milli barnanna sinna!

Bjór eða léttvín? Þarf maður að velja?

Bestu kaupin? Bestu hrossakaupin eru auðvitað kaupin á henni Spá minni síðastliðið sumar (fékk sko Kennedy í afmælisgjöf)

Vandræðalegasta augnablikið?  Þegar ég var 11 ára og nýja Don cano gallanum mínum var stolið í kvennaklefanum í sundlauginni í Sandgerði og ég þurfti að fara heim á nærfötunum

Ef þú ætlaðir að halda undir stóðhest í sumar, hvaða hestur yrði fyrir valinu? Steggur frá Hrísdal

Ef þú fengir að velja þér lag þegar þú ert í keppnisbrautinni, hvaða lag yrði fyrir valinu? Lítur vel út með Aron Can

Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar? Opna augun, teygi mig í símann og athuga hvenær reiðhöllin hjá Sörla er opin þann daginn

Hestur sem þú hefur ekki prófað en værir til í að fara á? Auðvitað höfðingjann Mídas frá Silfurmýri

Hvað er það besta við Sörla? Einstaklega fallegt umhverfi og reiðleiðir en frábærir Sörlverjar eru það allra besta við félagið

 

Ég skora á „frænku“ mína Guðbjörgu Ragnarsdóttur að segja okkur frá betri hliðinni sinni