Breyttur tími - Gæðinga - æfingamót fyrir yngri flokka Sörla

Fyrir Sörlafélaga 

Það er breyttur tími á æfingamótinu, það verður fimmtudaginn 26. maí kl 13:00

Æfingamót í gæðingakeppni fyrir alla keppendur í yngri flokkum - börn, unglinga og ungmenni, mótið er eingöngu fyrir Sörlafélaga.

2 dómarar munu dæma, tölur verða skrifaðar niður ásamt umsögn sem þátttakendur fá.

Skráning fer fram á tölvupósti – aeskulydsnefnd@sorli.is. Þar þarf að taka fram nafn á knapa og hesti ásamt því í hvaða flokk er skráð. Þátttaka er ókeypis.

Skrá þarf í síðasta lagi á miðnætti sunnudaginn 22. maí.

Æskulýðsnefnd Sörla