Folaldasýning Sörla - Úrslit

Á Sörlastöðum 

Dómarar voru Jón Vilmundarson og Valdís Björk Guðmundsdóttir. 29 folöld voru skráð á sýninguna, hvert öðru glæsilegra. Fengu folöld stig frá 1-5 fyrir 4 þætti; yfirlínu, samræmi, hreyfingar og fjölhæfni.

Folatollauppboðið var á sínum stað og voru boðnir upp tollar undir Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum, Ottesen frá Ljósafossi, Kolfaxa frá Margrétarhofi, Skugga-Svein frá Austurhlíð og Frosta frá Hjarðartúni. Við þökkum eigendum þessara hesta kærlega fyrir stuðninginn.

Folald sýningarinnar og handhafi Þjórsárbakkabikarsins glæsilega var Rana frá Hafnarfirði.

Hér koma úrslitin:

Flokkur merfolalda:

1. Rana frá Hafnarfirði
Brúntvístjörnótt
M: Vigdís frá Hafnarfirði
F: Hrafn frá Oddsstöðum
Eigandi og ræktandi: Bryndís Snorradóttir

2. Sólrún frá Svignaskarði
Rauðstjörnótt (verður grá)
M: Hugsýn frá Svignaskarði
F: Sólon frá Skáney
Eigandi og ræktandi: Guðmundur Skúlason 

3. Sóley frá Miklaholti
Rauðskjótt, blesótt
M: Ísafold frá Hólaborg
F: Illugi frá Miklaholti
Eigandi: Helga Guðrún Friðþjófsdóttir
Ræktandi: Þór Kristjánsson

4. Nös frá Ásgeirsbrekku
Rauðnösótt
M: Von frá Enni
F: Stardal frá Stíghúsi
Eigandi: Guðbr.Stígur Ágústsson
Ræktandi: Jóhann Ingi Haraldsson

5. Vorsól frá Áslandi
Rauð
M: Sóldögg frá Áslandi
F: Sindri frá Hjarðartúni
Eigendur og ræktendur: Kristín Þorgeirsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Þorgeir Jóhannesson og Gyða Sigríður Tryggvadóttir


Verðlaunahafar í flokki merfolalda

Flokkur hestfolalda

1. Sandur frá Stíghúsi
Móálóttur, skjóttur
M: Sara frá Sæfelli
F: Steinn frá Stíghúsi
Eigandi og ræktandi: Guðbr. Stígur Ágústsson

2. Rökkvi frá Sæfelli
Brúnn
M: Særún frá Sæfelli
F: Toppur frá Sæfelli
Eigandi og ræktandi: Jens Arne Petersen

3. Keisari frá Bjarkarhöfða
Rauðskjóttur
M: Kjós frá Bjarkarhöfða
F: Dalvar frá Efsta-Seli
Eigandi og ræktandi: Haraldur Haraldsson

4. Kári frá Svignaskarði
Jarpskjóttur
M: Jónsmessa frá Svignaskarði
F: Logi frá Svignaskarði
Eigandi og ræktandi: Oddný Mekkín Jónsdóttir

 5. Katlar frá Steinnesi
Moldóttur
M: Sigyn frá Steinnesi
F: Steinn frá Stíghúsi
Eigandi: Guðbr. Stígur Ágústsson
Ræktandi: Magnús Jósepsson

Verðlaunahafar í flokki hestfolalda
Úrslitafolöld í merfolaldaflokknum
Úrslitafolöld í hestfolaldaflokknum
Dómari, ritari og þulur