Framkvæmdir við Reiðhöll Sörla hefjast

Ný reiðhöll 

Framkvæmdir við uppbyggingu á nýrri reiðhöll Sörla fara af stað nú um miðjan apríl. Gert er ráð fyrir að uppsláttur sökkla hefjist í byrjun júní og að uppsteypa sökkla fyrir reiðhöllina og húsnæðið verði í sumar og haust. Vorið 2024 fara framkvæmdir aftur á fullt við reisingu hallarinnar ásamt fullnaðarfrágangi húsnæðisins. Áætluð verklok eru á árinu 2025.

Fyrst verður farið í að færa vatns og fráveitulagnir og girða svæðið af. Reiðvegum við höllina verður lokað tímabundið á meðan verið er að vinna í færslu á lögnum.

Við hvertjum reiðmenn að sýni þolinmæði, skilning og tillitsemi og fari sérstaklega varlega og vera vakandi fyrir þeim hættum sem kunna að skapast í kringum framkvæmdasvæðið.

Öll óviðkomandi umferð um framkvæmdarsvæðið er bönnuð.

Ný reiðhöll mun gjörbreyta aðstöðu hestafólks hjá Sörla og opna á ný tækifæri fyrir mótahald innandyra. Sörlastaðir og vallarsvæði Sörla er einstakt og samfélagið, umhverfið og umgjörðin sem Sörli byggt upp á svæðinu til fyrirmyndar. Ný bygging mun færa félagsmenn og gesti enn nær vellinum, nær íþróttinni og hestunum. Inni- og útiáhorfendaaðstaða mun renna saman og verður úr nýju húsi hægt að ganga út á hellulagða stétt ofan við nýja áhorfendabrekku við völlinn. Tilkoma nýrrar byggingar mun hjálpa félaginu að bjóða upp á enn betra starf í uppbyggingu barna- og nýliðunarstarfsins og auka möguleika á kennslu og föstum æfingum fyrir félagsmenn Sörla. Keppnis- og afreksfólk félagsins fær loks glæsilega inniaðstöðu til æfinga.

Hér er hægt að lesa tilkynningu Hafnarfjarðarbæjar í heild sinni