Helgina 21. og 22. september verður grjóthleðslunámskeið haldið í Sörlalundi í Kjóadal.
Námskeiðið stendur frá kl. 09.00 að morgni til kl.17:00 báða dagana.
Þátttakendum er bent á að hafa meðferðis góðan yfirfatnað og vinnuhanska. Í hádegishléi báða dagana er boðið upp á súpu í Hlíðarþúfum en kaffi og meðlæti verður á staðnum þar sem hleðslunámskeiðið fer fram.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Kristín Auður Kelddal, hægt er að hafa samband við hana í síma 770 5377 fyrir frekari upplýsingar.
Verð pr. mann kr. 25.000 kr.
Allir eru velkomnir á námskeiðið.