Hæfileikamótun LH

Auglýst eftir umsóknum - umsóknarfrestur til 6.des 

Auglýst er eftir umsóknum í Hæfileikamótun LH á fyrir árið 2021 fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur).

Í auglýsingunni stendur að með þjálfuninni verði lögð áhersla á að bæta og auka skilning á líkamsbeitingu knapa og samspili knapa og hests ásamt því sem að farið verði í hugræna þætti eins og markmiðasetningu, sjálfstraust og hugarfar. Um sé að ræða metnaðarfullan undirbúning fyrir knapa sem hafa það að markmiði að komast í U-21 árs landslið í hestaíþróttum þegar þeir hafa aldur til.

Stjórn og framkvæmdastjóri Sörla hafa ákveðið að styrkja okkar frábæru unglinga í Sörla sem áhuga hafa á að taka þátt í hæfileikamótuninni. Okkur langar því að hvetja okkar frábæru og duglegu unglinga sem eru fædd 2004-2007 til þess að sækja um og komist þeir að veitir Sörli hverjum unglingi hlutfall af þátttökugjaldi í styrk til þátttökunnar. Sörli setur það sem skilyrði fyrir styrkveitingu að viðkomandi þátttakandi ljúki námskeiði og keppi fyrir Hestamannafélagið Sörla á keppnisárinu 2021.

Hæfileikamótun LH er fyrir unga og metnaðarfulla knapa sem hafa áhuga á bæta sig og hestinn sinn. Í þjálfuninni er lögð áhersla á að bæta og auka skilning á líkamsbeitingu knapa og samspili knapa og hests ásamt því að farið verður í hugræna þætti eins og markmiðasetningu, sjálfstraust og hugarfar. Hæfileikamótun er góður undirbúningur fyrir knapa sem hafa að markmiði að komast í U-21árs landslið í hestaíþróttum þegar þeir hafa aldur til. Hópar verða starfræktir um um allt land til þess að ungir knapar víðsvegar um landið fái tækifæri til að taka þátt.

Fyrirkomulag er eftirfarandi:

Hópar verða starfræktir; á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Skagafirði, Eyjafirði, Austurlandi og Suðurlandi. Við hvetjum knapa til að sækja um á þeim stað sem þeim hentar best.

Kennsla fer fram einu sinni í mánuði frá janúar til maí (7x45mín einkatímar). Í maí verður vinna vetrarins færð yfir á keppnisvöllinn.

Hugræn vinna með þjálfara þar sem farið verður í markmiðasetningu, líkamsbeitingu knapa, hugarfar og sjálfstraust.

Fyrirlestrar frá aðilum úr íþróttahreyfingunni.

Að hausti hittast allir þátttakendur án hests í hópefli og fræðslu.

 Þjálfarar í Hæfileikamótun LH 2021:

  • Höfuðborgarsvæðið - Hanna Rún Ingibergsdóttir og Gústaf Ásgeir Hinriksson
  • Vesturland - Randi Holaker
  • Norðurland - Fanney Dögg Indriðadóttir (Akureyri) og Þorsteinn Björnsson (Skagafirði)
  • Austurland - Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir
  • Suðurland - Sigvaldi Lárus Guðmundsson, sem einnig er yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH

Kostnaður knapa er 100.000 kr. fyrir árið.

Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknarblaði á vefsíðu LH. Æskilegt er að senda inn yfirlit keppnisárangurs og tengil í videóupptöku af knapa á youtube eða öðrum miðlum.

Umsóknarfrestur er til 6. desember 2020 

Nánari upplýsingar á skrifstofu LH, 514-4030 lh@lhhestar.is.