Helgarnámskeið með Atla Guðmunds 30. nóv - 1. des

Kennsla 

Reynsluboltinn og Sörlafélaginn Atli Guðmundsson mun halda helgarnámskeið helgina 30. nóv - 1. des.

Atla þarf vart að kynna en hann hefur áratuga reynslu af keppni og kennslu í hestamennsku, hann kennir bæði hérlendis og erlendis. Námskeiðið verður sniðið að þörfum hvers knapa og hests.

45 mín. einkatímar laugardag og sunnudag.

Námskeiðsgjald er 26.000 kr.

Fyrstu 10 sem skrá sig komast á námskeiðið, hinir fara á biðlista.

Búið er að opna fyrir skráningu í Sportabler.

Hér er hægt að skrá á námskeiðið.

Til að skrá í Sportabler þarf að stofna aðgang.
sportabler.com
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá 
Fylla út 
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum.