Við öll viljum hafa hreint og fínt í kringum okkur og til þess að það gangi þá verða allir að taka þátt í hreinsunarstarfinu, margar hendur vinna létt verk J
Ruslagámur verður á svæðinu á laugardag sem verður sóttur af Hafnarfjarðabæ á milli 14:30 og 15:00
Gengið verðu um hverfið og rusl verður fjarlægt frá húsum.
Eigendur verða taka ábyrgð á sínu drasli fyrir utan sín hús því annars verður það fjarlægt án allrar ábyrgðar.
Eins og allir vita þá er Sorpa alltaf að passa upp á að við flokkum eins mikið og hægt er, því má ekki henda í gaminn:
· Allmennt heimilssorp/kaffistofusorp
· Hey, hvort sem það er ónýtt eða ekki
· Heyrúlluplast (á að fara í gamana hjá Sörla annan hvern þriðjudaga klukkan 17:30 – 18:00)
Að sjálfsögðu eigia húseigendur sem hafa verið að standa í stórum framkvæmdum innanhús að sjá sjálfir um að koma því rusli á Sorpu.
Verkefni hreinsunardagsins eru eftirfarandi:
· Tína rusl og taka til í Hlíðarþúfum.
· Stóra reiðgerðið og hringgerðin - raka frá köntum og lagfæra.
· Yfirfara tunnuna okkar - raka frá köntum og lagfæra.
· Labba skógarhringinn og tína rusl. (Stjórnin mun vera með poka við Gáminn)
Stjórnin mætir að sjálfsögðu með pylsur á grillið og drykki klukkan 15:00 og kvetjum við alla að koma og hafa gaman saman með okkur J.