Hugrakkir hestar og öruggir knapar

Þrjú pláss laus 

Námskeið Sörlastöðum
"Segðu mér aðeins betur frá þessum truntuskap"

Skynjun og atferli

Spennandi helgarnámskeið á Sörlastöðum

Helgina 4. - 6. febrúar verður helgarnámskeið á Sörlastöðum sem fjallar um skynjun og atferli hestsins.

Reiðhöllin verður fyllt af allskyns áskorunum sem knapar fá dygga hjálp við að leysa með hesti sínum og um leið aukna færni og kunnáttu við þjálfun og samskipti við hestinn.

Námskeiðið byggist á verklegri og bóklegri kennslu um læriatferli hestsins, skynjun og viðbrögð.  Farið verður í aðferðafræði við að venja hestinn við áreiti, td umhverfisáreiti og alls kyns þrautir verða leystar bæði við hendi og á baki, líkamstjáningu og hegðun knapa/þjálfara í hinum ýmsu aðstæðum.

Bóklegur tími verður á föstudegi og verklegir tímar skiptast í einn tíma á föstudegi, tvo á laugardegi og einn á sunnudegi, ásamt því að lokatími á sunnudegi er að leysa ”þrautabraut” þar sem samskipti knapa og hests verða sett í smá próf undir álagi.

Markmið námskeiðsins er að bæta skilning knapa á eðli og atferli hestsins, bæta skilning hests og knapa á ábendingum og samskipti knapa við hestinn sinn og auka öryggi þeirra í því umhverfi sem hestur og knapi upplifa saman.

Miðað er við 10-12 nemendur á námskeiðinu

Það eru 9 skráðir nú þegar á námskeiðið, þau skráðu sig í haust en námskeiðið féll þá niður, því eru einungis 3 pláss laus, hinir fara á biðlista.

Verð 35.000 kr.

Frekari upplýsingar: hinriksigurdsson@gmail.com

Það er orðið fullt á námskeiðið, ef einhver vill komast á biðlista er hægt að senda tölvupóst á sorli@sorli.is

Kennari: Hinrik Þór Sigurðsson
Yfirþjálfari hjá Sörla.

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Námskeið
Hvenær:
Hvar:
Að Sörlastöðum
Hver:
Yfirþjálfara Sörla hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann