Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum 2021 15.-18. júlí 2020 Knapafundur

Knapafundur 

Hestamannafélagið Sörli hlakkar til að taka á móti ykkur

Ágætu knapar á Íslandsmóti 2021. Hestamannafélagið Sörli býður ykkur velkomin til leiks. Knapafundur haldinn sem viðburður hér á Facebook. Það má setja fyrirspurnir inn hér á Facebook á meðan á móti stendur. Hann er aðgengilegur undir ,,Discussions“ á síðu mótsins á Facebook.

Dagskrá hefst kl. 9.00 á fimmtudag með keppni í fimmgangi F2 unglinga.  

Knapar fylgist með á FB hugsanlegum dagsskrárbreytingum í Kappa.

Útvarpað verður á mótinu  á FM 106,1

Knapar gæti að því að mæta á réttum tíma í safnhring. Gefi sig fram við fótaskoðunarmenn.

Í forkeppni þar sem keppt er í hollum (F2, V2, T3 og T4)  er innkoma á völl til hægri, nær dómurum. Sjá bláu línu á korti.

Knapar skulu ríða út af velli nær áhorfendasvæði, sjá rauðu línu.

Knapar í hollum sem hafa lokið keppni skulu veita knöpum í næsta holli forgang við innkomu á völlinn.

Í forkeppni þar sem knapar eru einir á velli (V1,T1) ráða knapar innkomu á völlinn. í meistarflokki hafa val um leið inn og út af velli.

Hringvelli verður lokað í öllum greinum barnaflokks og í slaktaumatölti.

Æfingar eru bannaðar á keppnisvelli í dagskrá hléum.

Í gæðingaskeiði og 100 m skeiði er ferjuleið sýnd með grænu á kortinu. Að loknum fyrri spretti skulu knapar fara eftir ferjuleið til þess að vera tilbúnir í seinni sprett.

Afskráningar skulu beras á netfangið skraning@sorli.is

Afskáningar í úrslitakeppni skulu berast a.m.k. klukkustund áður en B úrslit fara fram í viðkomandi grein.

Sími hjá yfirdómara, Svafari Magnússyni er 820 3939.

Símar hjá mótstjórn eru 824 4790 (Darri) og 866 8213 (Inga).

Sími hjá framkvæmdastjóra mótsins, Kötlu Sif er 611 7706.

Hestamannafélagið Sörli býður ykkur velkomin á Íslandsmót. Gangi ykkur vel.