Keppnisakademía Sörla - Hæfileikamótun

Hefst í byrjun mars 

Keppnisakademía Sörla - Hæfileikamótun

Námskeiðið er ætlað knöpum í barna- unglinga- og ungmennaflokki sem hafa á undanförnum tveimur árum tekið þátt í að minnsta kosti 5 mótum, verið þátttakendur í meistaradeildum æskunnar eða ungmenna, eða tekið þátt á opnum mótum (millimót) undanfarið ár og stefna í keppni með hesta sína í vor.

Þar verður farið í undirbúning fyrir keppni, æfingar fyrir þær greinar sem stefnt er á og markvisst unnið að þeim markmiðum sem sett eru.

Iðkendur fá aðstoð við keppnisþáttöku og undirbúning, hjálp við þjálfun og uppbyggingu keppnishestsins í aðdraganda keppnistímabils.

Námskeiðið er byggt upp á 2 helgarnámskeiðum þann 8.-9. mars og 12.-13. apríl. Eftir páska taka við svo vikulegir tímar ýmist í reiðhöllinni eða úti á velli fram til mánaðamóta maí/júní.

Námskeiðið nær því yfir Hafnarfjarðarmeistaramót- og gæðingamót Sörla.

Athugið að keppnisakademían er alveg frístandandinámskeið hugsað til viðbótar við önnur námskeið félagsins, og er ekki tengd Reiðmennskuæfingum en iðkendum er að sjálfsögðu frjálst að skrá sig að uppfylltum skilyrðum (sjá afreksstefnu Hestamannafélagsins Sörla) og vera með á báðum námskeiðum.

Akademían er undir stjórn yfirþjálfara Ástu Köru Sveinsdóttur og fleiri kennarar munu koma að kennslu á tímabilinu.

Námskeiðið er alls 12 reiðtímar (3 á hvoru helgarnámskeiði og 6 tímar í vikulegum æfingum frá 28. apríl) og það er takmarkað framboð af plássum á námskeiðið.

Verð 56.000 kr.

Opnað verður fyrir skráningu á fimmtudaginn 27. feb kl 14:00 í Keppnisakademíuna á Sportabler.
Vinsamlegast sendið lista yfir keppnisþátttöku síðastliðin 2 ár til yfirþjálfara:
astakara91@gmail.com

Við hvetjum forráðamenn til þess að græja skráningarnar sem allra fyrst til þess að hægt sé að fá góða  yfirsýn yfir fjölda iðkenda.

Allar frekari upplýsingar eru hjá yfirþjálfara félagsins Ástu Köru, vinsamlegast sendið póst á astakara91@gmail.com

Til að skrá í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:
sportabler.com/shop/sorli
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá
Fylla út
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.