Knapamerki 2, 3 og 4 - Haust 2024

Haust 2024 

Knapamerki
Knapamerkjabækurnar fimm

Kennd verða knapamerki 2 og 3 á haustönn. Einnig viljum við kanna áhugan fyrir knapamerkjum 4.

Knapamerkin eru markvisst og stigskipt nám í hestamennsku. Námið hentar öllum byrjendum sem lengra komnum. Námið er skipulagt þar sem farið er yfir nánast alla þætti hestamennskunnar og lagður grunnur að árangri og öryggi. Á fyrsta stigi er lögð áhersla á grunnatriði, atferli, eðli og hegðun hesta, knapinn lærir að umgangast hestinn af öryggi. Farið er yfir gangtegundir, ásetu og taumhald. Stig af stigi aukast kröfurnar jafnt og þétt og námsefnið verður viðameira. Á 5. og síðasta stiginu á knapinn að hafa mjög gott vald á gangtegundum, mismunandi ásetum, fjölbreyttum fimiæfingum og skilja hvernig á að byggja upp og þjálfa reiðhest. 5. stigið leggur grunn að því að knapinn geti lagt fyrir sig frekar nám í tamningum og þjálfun hesta. 

Knapamerki 2
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 1.
13 verklegar reiðtímar og 6 bóklegir tímar.
Bókleg kennsla hefst 11. sept - 1. okt, kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl 16:00 - 17:00, nema FYRSTI tíminn verður miðvikudaginn 11. sept á sama tíma.
Verklega kennslan hefst 4. okt -19. nóv. Kennt verður á þriðjudögum og föstudögum.
Bóklegt: 11. sept, 12. sept, 17. sept, 19. sept, 26. sept, próf 1. okt.
Verklegt: 4. okt, 8. okt, 11. okt, 15. okt, 18. okt, 22. okt, 25. okt, 29. okt, 1. nóv, 5. nóv, 8.  nóv, 12. nóv, 15. nóv, 19. nóv – próf.

Verð 18 ára og yngri 54.000 kr
Verð 19 ára og eldri 66.000 kr

Knapamerki 3
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 2.
20 verklegar reiðtímar og 7 bóklegir tímar.
Bókleg kennsla hefst 11. sept - 3. okt, kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00 – 18: 00, nema FYRSTI tíminn verður miðvikudaginn 11. sept á sama tíma.
Verklega kennslan hefst 4. okt -13. des. Kennt er á þriðjudögum og föstudögum.
Bóklegt: 11. sept, 12. sept, 17. sept, 19. sept, 26. sept, 1. okt og próf 3. okt
Verklegt: 4. okt, 8. okt, 11. okt, 15. okt, 18. okt, 22. okt, 25. okt, 29. okt, 1. nóv, 5. nóv, 8.  nóv, 12. nóv, 15. nóv, 19. nóv , 22. nóv, 26. nóv, 29. nóv, 3. des, 6. des, 10. des, 13. des próf
Verð 18 ára og yngri 77.000 kr
Verð 19 ára og eldri 97.000 kr

Kennari Knapamerkja 2 og 3 er Ásta Kara Sveinsdóttir.

Knapamerki 4
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 3.
22 verklegar reiðtímar og 11 bóklegir tímar.
Ekki er búið að ákveða hver kennir kanapmerki 4 né á hvaða tíma þau verða kennd.
Verð 18 ára og yngri 87.000 kr.
Verð 19 ára og eldri 109.000 kr.

Við verðum að forskrá og raða í hópa, áður en skránig fer fram í Sportabler, 18 ára og yngri geta nýta frístundastyrk, hægt er að skipta greiðslum. 19 ára og eldri forskrá einnig og geta einnig óskað eftir skiptingu á greiðslum.

Fyrstu 9 sem skrá sig komast að, hinir fara á biðlista.

Hér er hægt að forskrá á Knapamerki 2

Hér er hægt að forskrá á Knapamerki 3

Hér er hægt að forskrá á Knapamerki 4