Knapamerki 2, 3 og 5

Haust 2021 

Knapamerki
Knapamerkjabækurnar fimm

Kennd verða knapamerki 2, 3 og 5 að þessu sinni ef næg þátttaka næst í hópana (lágmark 5 iðkendur).

Knapamerkin eru markvisst og stigskipt nám í hestamennsku. Námið hentar öllum byrjendum sem lengra komnum. Námið er skipulagt þar sem farið er yfir nánast alla þætti hestamennskunnar og lagður grunnur að árangri og öryggi. Á fyrsta stigi er lögð áhersla á grunnatriði, atferli, eðli og hegðun hesta, knapinn lærir að umgangast hestinn af öryggi. Farið er yfir gangtegundir, ásetu og taumhald. Stig af stigi aukast kröfurnar jafnt og þétt og námsefnið verður viðameira. Á 5. og síðasta stiginu á knapinn að hafa mjög gott vald á gangtegundum, mismunandi ásetum, fjölbreyttum fimiæfingum og skilja hvernig á að byggja upp og þjálfa reiðhest. 5. stigið leggur grunn að því að knapinn geti lagt fyrir sig frekar nám í tamningum og þjálfun hesta. 

Knapamerki 2
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 1.
Bókleg kennsla hefst 14. sept - 1. okt, kennt verður á þriðjudögum og föstudögum kl 18:00
Verklega kennslan hefst 5. okt -16. nóv. Kennt er á þriðjudögum og miðvikudögum
Á eftirfarandi dögum: 5. okt, 6. okt, 12.okt, 13. okt, 19. okt. 20. okt, 26. okt, 27. okt, 2. nóv, 3. nóv, 9. nóv, 10. nóv og 16. nóv yrði verklegt próf.
Verð 18 ára og yngri 46.000 kr
Verð 19 ára og eldri 58.000 kr

Knapamerki 3
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 2.
Bókleg kennsla hefst 14. sept - 1. okt, kennt verður á þriðjudögum og föstudögum kl 19:00
Verklega kennslan hefst 6. okt -10. des. Kennt er á miðvikudögum og föstudögum
Á eftirfarandi dögum: 6. okt, 8. okt, 13.okt, 15. okt, 20. okt. 22. okt, 27. okt, 29. okt, 3. nóv, 5. nóv,10. nóv, 12.nóv, 17. nóv, 19. nóv, 24. nóv, 26. nóv, 1. des, 3. des, 8. des og 10. des yrði verklegt próf.
Verð 18 ára og yngri 69.000 kr
Verð 19 ára og eldri 89.000 kr

Kennari Knapamerkja 2 og 3 er Ásta Kara Sveinsdóttir.

Knapamerki 5
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið Knapamerki 4.
Bókleg kennsla hefst 14. sept - 19. okt, kennt verður á þriðjudögum og fiimtudögum kl 16:00
Verklega kennslan hefst 21. okt - 25. jan. Kennt er á þriðjudögum og fiimtudögum kl 16:00
Á eftirfarandi dögum: 21. okt, 26. okt, 28.okt, 2. nóv, 4. nóv. 9. nóv, 11. nóv, 16. nóv, 18. nóv, 23. nóv, 25. nóv, 30. nóv, 2.des, 7.des, 9 des, 14. des, 16. des, 4 jan, 6. jan, 11. jan, 13. jan, 18. jan, 20. jan, 25. jan yrði verklegt próf.
Verð 18 ára og yngri 84.000 kr
Verð 19 ára og eldri 108.000 kr

Kennari Knapamerki 5 er Ástríður Magnúsdóttir.

Það opnar fyrir skráningu á mánudaginn 6. sept, eftir hádegi í Knapamerkin fyrir yngri iðkendur félagsins, gegnum Sportabler kerfið.

Til að skrá yngri en 18 ára í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:
sportabler.com/shop/sorli
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá 
Fylla út 
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.

Skráning fyrir 19 ára og eldri á Knapamerki 2 hér, Knapamerki 3 hér, Knapamerki 5 hér.
Einnig geta þeir sem eru búnir með bóklega hlutann eða hafa tekið þessi stig áður skráð sig bara í verklegt undir þessum skáningarflipum, en þeir sem hafa lokið þessum stigum ganga ekki fyrir en geta fengið að taka þátt ef það vantar í hópa.