Knapamerki 2 og 4

Skráning hafin 

Á þessari haustönn 2020 verða Knapamerki 2 og 4 kennd.
Kennari verður Ástríður Magnúsdóttir

Knapamerkin eru markvisst og stigskipt nám í hestamennsku. Námið hentar öllum byrjendum sem lengra komnum. Námið er skipulagt þar sem farið er yfir nánast alla þætti hestamennskunnar og lagður grunnur að árangri og öryggi. Á fyrsta stigi er lögð áhersla á grunnatriði, atferli, eðli og hegðun hesta, knapinn lærir að umgangast hestinn af öryggi. Farið er yfir gangtegundir, ásetu og taumhald. Stig af stigi aukast kröfurnar jafnt og þétt og námsefnið verður viðameira. Á 5. og síðasta stiginu á knapinn að hafa mjög gott vald á gangtegundum, mismunandi ásetum, fjölbreyttum fimiæfingum og skilja hvernig á að byggja upp og þjálfa reiðhest. 5. stigið leggur grunn að því að knapinn geti lagt fyrir sig frekar nám í tamningum og þjálfun hesta.

Umsækendur verða að vera 12 ára á árinu 2020.

Knapamerki 2
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið verklegu Knapamerki 1.
Bókleg kennsla verður frá 14. sept til 7. okt á mánudögum og miðvikudögum kl 19:00
Verklega kennslan hefst svo strax í framhaldi og hefst 14. okt og verður kennt á eftirfarandi dögum: 14. okt, 21. okt, 28.okt, 4. nóv, 6.nóv, 11, nóv. 13. nóv, 18. nóv, 20. nóv, 25. nóv, 27. nóv, 2. des, 4.des og 9. des yrði verklegt próf.
Fyrstu vikurnar eru verklegu tímarnir 1x í viku en svo verða þeir 2x í viku seinni vikurnar.
Tímasetningin á eftir að koma í ljós en kennt verður á miðvikudögum og föstudögum.
Verð 18 ára og yngri 44.000 kr
Verð 19 ára og eldri 51.000 kr

Knapamerki 4
Undanfari - nemandi verður að hafa lokið verklegu Knapamerki 3.
Bókleg kennsla verður frá 14. sept til 26. okt á mánudögum og miðvikudögum kl 20:00.
Verklega kennslan hefst svo strax 28. okt – 16. des og á nýju ári frá 6. – 29. janúar.
Tímasetningin á eftir að koma í ljós en kennt verður á miðvikudögum og föstudögum.
Verð 18 ára og yngri 68.000 kr
Verð 19 ára og eldri 80.000 kr

Tímasetningar í verklegu kennslunni koma í ljós að skráningu lokinni, 4 nemendur geta verið í hverjum hópi og það verða kenndir að hámarki 4 hópar.
Kennari metur hvernig raðað verður í hópa, yngri en 18 og eldri en 19 eru yfirleitt ekki saman í hóp - en allt er þetta metið hverju sinni.

Bóklegt og verklegt - 18 ára og yngri skrá í gegnum ibh.felog.is

Bóklegt og verklegt - 19 ára og eldri skrá á Knapamerki 2 hér og Knapamerki 4 hér
Einnig geta þeir sem eru búnir með bóklega hlutann eða hafa tekið þessi stig áður skráð sig bara í verklegt undir þessum skáningarflipum, en þeir sem hafa lokið þessum stigum ganga ekki fyrir en geta fengið að taka þátt ef það vantar í hópa.

Ef einhverjir hafa einungis áhuga á að taka bóklega hlutann, þá fer skráning fram á sorli@sorli.is
Undanfari - þáttakandi verður að vera búinn með Knapamerki 1
Verð fyrir bóklegt: Knapamerki 2 - 12.000 kr
Undanfari - þáttakandi verður að vera búinn með Knapamerki 3
Verð fyrir bóklegt: Knapamerki 4 - 14.000 kr