Kvennadeildin - Töltæfingar

Æfingarnar halda áfram 

18. febrúar næstkomandi þá hefjast aftur Kvennatöltsæfingarnar sem margar konur hafa beðið spenntar eftir.

Við ætlum að vera ca annan hvern föstudag á Sörlastöðum á milli 18:00-23:10 og eiga glaðar stundir saman.
Hægt er að velja um að vera í feb, mars og apríl og bæta svo maí við eins og sumar vildu gera í fyrra, en aðrar vildu fara í Grilltúr og Helgafellstúr.
18. feb, 4. mars, 18. mars, 1. apríl, 22. apríl - 5 æfingar kosta 18.000 kr.
+ 6. maí og 20. maí - 7 æfingar kosta 24.000 kr.

Ásta Kara stýrir þessum æfingum.

Hægt verður að taka þátt á tvennan hátt:

  • Annars vegar verður boðið upp á að taka þátt í léttum 40 mínútna töltæfingum  þar sem konunum er skipt upp í hópa þar sem að sex konur eru í hverjum hóp. Þessar æfingar verða léttar og liðkandi töltæfingar þar sem æft verður að ríða slöngur og eitthvað fleira töff. Þetta verða 7 skipti og kosta 24.000 kr á þessar æfingar.

  • Hins vegar ætlum við að vera með veitingar og hitting í Sörlasalnum á þessum föstudagskvöldum. Þannig geta allar konur tekið þátt, hvort sem að þær vilja mæta með hest eða ekki. Konur sem mæta í tíma geta komið fyrir og eftir tíma í salinn, geymt hestinn sinn í hesthúsinu niðri ef þær óska þess. Hinar mæta þegar þeim hentar. Þetta er tilvalinn vettvangur til að hittast og hafa gaman saman hvort sem þær vilja taka þátt á hesti eða ekki.

Okkur langar að biða allar konur, á öllum aldri, að taka þátt, alls ekki bara þeim sem tóku þátt í fyrra. Því Sörlakonur er svo sjúklega skemmtilegar að við erum alveg vissar um að úr verður skemmtilegur félagsskapur með skemmtilegum hugmyndum sem þróast inn í starfið.

18. febrúar n.k. fjölmennum við allar, Stebba okkar ætlar að bjóða okkur upp á súpu og drykki gegn vægu verði, hún verður með okkur öll kvöldin nema 22. apríl þá er hún erlendis og salurinn verður lokaður.

Þær konur sem ekki mæta með hest greiða bara veitingar þegar þær mæta.

Þið konur sem viljið taka þátt í léttu töltæfingunum skráið ykkur hér.