Landsþing LH - þingfulltrúar

Í Borgarnesi 20.-27. okt 

Landsþing LH verður haldið dagana 26. – 27. október n.k í Borgarnesi. Rétt til þingsetu eiga 202 þingfulltrúar frá 40 hestamannafélögum. Hestamannafélagið Sörli á rétt á að senda 15 fulltrúa á þingið.

Stjórn Sörla ráðstafar sætum til setu á þingið, en auk stjórnar og nokkurra formanna nefnda á vegum Sörla eru ákveðin sæti til setu á þingið í boði fyrir þá sem áhuga hafa að sitja þingið og taka þátt í störfum þess.

Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á sorli@sorli.is  fyrir 30. sept og óska eftir því að vera þingfulltrúar félagsins.

Stjórn Sörla