LH-félagi ársins - hvatningaverðlaun

Stjórn óskar eftir ábendingu 

Stjórn LH hefur ákveðið að verðlauna LH-félaga ársins.

LH – félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar.

Óskað er eftir að hvert og eitt hestamannafélag tilnefni félaga ársins innan sinna raða og sendi tilnefninguna til LH ásamt rökstuðningi fyrir valinu. Einnig hvetjum við félögin til að verðlauna þann einstakling sem verður fyrir valinu hjá þeim sem félaga ársins.

Stjórn Hestamannafélagsins Sörla óskar eftir ábendingum frá félagsmönnum. Skilafrestur er til 25. febrúar, vinsamlegast sendið á netfangið sorli@sorli.is

Skipuð hefur verið nefnd sem velur fimm félaga úr innsendum tilnefningum, sem kosið verður um í netkosningu á vef LH um miðjan mars/byrjun apríl.

Í nefndinni sitja:
Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH
Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður æskulýðsnefndar
Einar Gíslason, formaður keppnisnefndar
Gréta V. Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í LH
Lilja Björk Reynisdóttir, varamaður í stjórn LH

Þegar úrslit liggja fyrir verður LH-félagi ársins veitt vegleg verðlaun og allir fimm útnefndir fá viðurkenningu.