Um leið og við minnum á vígsluhátíð nýju reiðhallarinnar á morgun miðvikudaginn 4. júní, athöfnin hefst stundvíslega kl 17:00 langar okkur að segja frá metnaðarfullri dagskrá sumarsins.
Það er stefna Sörla að hafa sem mesta virkni á svæðinu okkar á fallegasta tíma ársins. Okkur langar því að biðja alla félagsmenn og húseigendur að huga að umhverfi sínu og hafa það sem snyrtilegast.
Dagskrá
4. júní - Vígsluhátíð nýrrar reiðhallar að Sörlastöðum
16. til 20. júní - Kynbótasýning á beinu brautinni
20. til 22. júní – Áhugamannamót Íslands
18. til 20. júlí – Íslandsmót barna og unglinga
Fyrirhugað er að halda okkar hefðbundnu Gæðingaveislu í lok sumars og verður dagsetning hennar auglýst síðar
Við minnum svo á að Reiðskóli Íshesta og Fákar og fjör á Álftanesi eru báðir í samstarfi við Sörla. Báðir reiðskólar hafa verið afar vinsælir.