Heimsmet á kynbótasýningum

Dalvar og Hetja 

Stórkostlegir gæðingar í eigu Sörlafélaga á kynbótasýningum þessa dagana.

Dalvar frá Efsta-Seli setti heimsmet í flokki 5 vetra stóðhesta með aðaleinkunnina 8,99. Dalvar er í eigu Sörlafélagans Ásbjörns Helga Árnasonar og Daníels Jónssonar

Þess má geta að Ásbjörn gaf Sörla folatoll undir Dalvar í vinning fyrir Skírdagshappdrættið sem dregið var úr í gær.

Hetja frá Ragnheiðarstöðum ræktuð af Helga Jóni Harðarsyni Sörlafélaga og í eigu HJH eignarhaldsfélagi og Birgis Más Ragnarssonar setti einnig glæsilegt heimsmet í flokki 6 vetra hryssna með aðaleinkunnina 8,83.

Við óskum eigendum og ræktendum innilega til hamingju með þessi glæstu ræktunarhross.