Reiðmennskuæfingar yngri flokka
Reiðmennskuæfingar yngri flokka hefjast að nýju 6. janúar. Búið er að forskrá alla sem voru á æfingum á haustönn.
Vinsamlegst staðfestið með því að ganga frá greiðslum - munið eftir frístundastyrk.
Æfingarnar samanstanda af bóklegri og verklegri kennslu ásamt opnum verklegum æfingum með aðstoð þjálfara. Æfingarnar eru eingöngu fyrir iðkendur á eigin hestum.
Önnin hefst 6. jan með verklegum tíma og líkur 9. apríl.
Hægt verður að bæta inn nýjum iðkendum þó svo að önnin sé byrjuð en best að koma inn strax í upphafi.
Kennslan fer þannig fram að verklegar æfingar eru á mánudögum eða miðvikudögum, opin æfing í reiðhöll með leiðsögn þjálfara á fimmtudögum 4 skipti yfir önnina, 2 sýnikennslur og 2 bóklegir tímar á fimmtudögum samtals 4 skipti yfir önnina.
Æfingargjöld fyrir vorönn eru 70.000 kr og hægt að nýta frístundastyrk og skipta greiðslum.
Búið er að opna fyrir nýskráningu á æfingarnar fyrir yngri iðkendur félagsins, í gegnum Sportabler kerfið.
Til að skrá yngri en 18 ára í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:
Hér er hægt að skrá á reiðmennskuæfingar.
Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Kara yfirþjálfari, astakara91@gmail.com eða síma 869 7925
Áfram Sörli