Pollanámskeið haust 2021

Pollanámskeið 

Þá er komið að því að við ætlum að vera með Pollanámskeið fyrir 5-10 ára krakka, þetta er námskeið fyrir krakka sem geta komið á eigin hestum.

Námskeiðin verða á fimmtudögum, hver kennslustund verður 40 mín. Kennt verður 4. nóv, 11. nóv, 18. nóv, 25. nóv, 2. des, 9. des og 16. des.

2 hópar verða kenndir, fyrri hópurinn kl 17:15 - 17:55 og seinni hópurinn kl 17:55 - 18:35

Á námskeiðinu verður kennd almenn undirstöðuatriði reiðmennsku og einnig verða skemmtilegar þrautir og jafnvægisæfingar.

Kennari verður Ástríður Magnúsdóttir en hún hefur kennsluréttindi frá Hólaskóla.

Athugið að allir nemendur þurfa að vera félagsmenn Hestamannafélagsins Sörla. Hægt er að skrá sig sem félagsmann með því að senda póst á sorli@sorli.is. Félagsgjald er frítt fyrir yngri en 18 ára.

Fyrstu 12 krakkarnir sem eru skráðir komast á námskeiðið, hinir fara á biðlista.

Námskeiðið kostar 18.000 kr

Fullt er á námskeið, hægt að senda tölvupóst á sorli@sorli.is ef óskað er eftir að setja barn á biðlista.