Á  Árs- og Uppskeruhátíð Sörla dagana 17. - 18. nóv verða veittar viðurkenningar fyrir keppnisárangur og kynbótahross félagsmanna. 
Átt þú eða ræktaðir þú hross sem var sýnt í kynbótadómi árið 2023??
Kynbótanefnd Sörla verðlaunar ræktendur hæst dæmdu hrossanna í hverjum flokki
Kynbótahross
Veitt verða verðlaun fyrir:
- Hæst dæmda kynbótahross í fullnaðardóm ræktað af Sörlafélaga 4. vetra. 
- Hæst dæmda kynbótahross í fullnaðardóm ræktuð af Sörlafélaga 5. vetra. 
- Hæst dæmda kynbótahross í fullnaðardóm ræktuð af Sörlafélaga 6. vetra. 
- Hæst dæmda kynbótahross í fullnaðardóm ræktuð af Sörlafélaga 7. vetra og eldri. 
 
Einnig verða veitt verðlaun fyrir hæst dæmda hross í kynbótadómi á árinu 2023 ræktuðu af Sörlafélaga og hæst dæmda hross í eigu Sörlafélaga á árinu 2023.
Tökum þátt og sendum inn árangur ársins.
Áfram Sörli.
