Reiðnámskeið með Atla Guðmunds á þriðjudögum í janúar

Fjögurra vikna námskeið 

Reynsluboltinn og Sörlafélaginn Atli Guðmundsson mun halda fjögurra vikna reiðnámskeið í janúar. Atla þarf vart að kynna en hann hefur áratuga reynslu af keppni og kennslu í hestamennsku, hann kennir bæði hérlendis og erlendis.  Námskeiðið verður sniðið að þörfum hvers knapa og hests, þar sem um er að ræða 30 mín. einkatíma.  Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 4. janúar 2022.

Kennslutímar verða á milli 17:00 og 22:00.

Námskeiðsgjald er 30.000 kr.

Fyrstu 10 sem skrá sig komast á námskeiðið, hinir fara á biðlista.

Það er orðið fullt á námskeiðið og kominn biðlisti, ef einhver vill bæta sér á biðlistann þá getur viðkomandi sent póst á sorli@sorli.is og óskað eftir því.