Reiðmennskuæfingar Sörla - Haust 2024

Það styttist í æfingar ofl 

Reiðmennskuæfingar yngri flokka hefjast 23. september og reiðmennskuæfingar fullorðinna hefjast 28. október. Búið er að opna fyrir skráningu.

Um er að ræða skipulagða kennslu fyrir félagsmenn í hestamannafélaginu Sörla, sem nær yfir allt tímabilið, haustönn og vorönn.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst sem ætlið að vera með svo það sé hægt að raða í hópa og byrja skipulagningu sem fyrst.

Reiðmennskuæfingar yngri flokka

Nú er æfingatímabilið að hefjast og við opnum fyrir skráningu á Reiðmennskuæfingar yngri flokka.

Það er heilmikið framundan í æfingunum og starfið að vex jafnt og þétt.

Æfingarnar samanstanda af bóklegri kennslu, sýnikennslu og verklegri kennslu ásamt opnum verklegum æfingum með aðstoð þjálfara.

Starfið hefst nú í lok september með bóklegum tíma, léttum æfingum án hests og skemmtilegri samveru.

Hægt verður að bæta inn nýjum iðkendum þó svo að önnin sé byrjuð

Svo í október hefjast svo reiðtímar á eigin hesti, svo það er gott fyrir þátttakendur að byrja að huga að því að vera klár með hesta sína á fyrstu vikum októbermánaðar.

Stefnt er á fyrstu verklegu reiðtíma 14. október.

Kennslan fer þannig fram að verklegar æfingar eru á mánudögum eða miðvikudögum. Opin æfing í reiðhöll með leiðsögn þjálfara á fimmtudögum 4 skipti yfir önnina, 2 sýnikennslur og 2 bóklegir tímar á fimmtudögum samtals 4 skipti yfir önnina.

Jólafrí 13. desember - 5. janúar

Æfingargjöld fyrir haustönn eru 60.000 kr og hægt að nýta frístundastyrk.

Kynningarfundur á starfinu verður haldinn um miðjan september áður en æfingar hefjast.

Búið er að opna fyrir skráningu á æfingarnar fyrir yngri iðkendur félagsins, í gegnum Sportabler kerfið.

Til að skrá yngri en 18 ára í Sportabler þarf að forráðamaður að stofna aðgang:

https://sportabler.com/shop/sorli/


Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá 
Fylla út 
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.

Reiðmennskuæfingar fullorðinna

Hefjast mánudaginn 28. október og standa til 16. apríl, alls 22 vikur.

Jólafrí 13. des - 5. jan.

Kennslan fer þannig fram að verklegar æfingar eru einu sinni í viku allt tímabilið. Það verða tveir bóklegir tímar og tvær sýnikennslur á haustönn og einnig á vorönn.

Reiðmennskuæfingar fullorðinna eiga tíma í reiðhöllinni á mánudagskvöldum, miðvikudagskvöldum, fyrir hádegi á miðvikudögum og föstudögum, og því ættu flestir áhugasamir að geta fundið æfingatíma við hæfi.

Verð: 105.000 kr

Reiðmennskuæfingar fullorðinna eru frábært verkfæri fyrir áhugasama knapa til þess að þjálfa skipulega yfir allt tímabilið með leiðsögn reyndra þjálfara og kennara.

Þeir knapar sem hafa verið á æfingum undanfarinár, hafa færi á að halda áfram að byggja ofan á kunnáttu sína og færni, með áframhaldi á þeirri línu sem sett hefur verið og nýjir iðkendur verða saman í hópum og verkefnum til þess að tryggja góða samfellu fyrir alla iðkendur.

Fyrstu 30 sem skrá sig komast á æfingar, hinir fara á biðlista.

Búið er að opna fyrir skráningu á æfingarnar fyrir eldri iðkendur félagsins, í gegnum Sportabler kerfið.

Skráningu líkur 21. okt 2024.

Til að skrá í Sportabler þarf að stofna aðgang:

https://sportabler.com/shop/sorli/


Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá 
Fylla út 
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum og nýta frístundastyrk.