Reiðvegir verða heflaðir í dag og á morgun laugardag

Framkvæmdir á reiðvegum 

Reiðhringirnir tveir, Skógarhringur og Hraunhringur verða heflaðir í dag og á morgun laugardaginn 28. september.

Um er aðræða almennt viðhald og einnig er verið að laga fyrir Landsnet þar sem stórir þungir bílar hafa farið um frá þeim á hluta af Skógarhringnum.

Hvetjum enn til þess að reiðmenn sýni þolinmæði, skilning og tillitsemi og fari sérstaklega varlega og séu vakandi fyrir þeim hættum sem kunna að skapast.

Reiðveganefnd Sörla