Samningur undirritaður

Húrra, húrra, húrra 

Helga Ingólfsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Páll Daníel Sigurðsson og Atli Már Ingólfsson við undirskift samningins.
Ljósm. Árdís Ármannsdóttir.
Hópmynd af þeim sem voru við undirritun samningsins.
Ljósm. Árdís Ármannsdóttir

Síðastliðinn þriðjudag var ritað undir samning milli Hafnarfjarðarbæjar, Eyktar og Sörla um byggingu nýrrar reiðhallar fyrir Sörla. Framkvæmdir eiga að hefjast í apríl 2023 og áætlað er að þeim ljúki árið 2025. Áætlanir gera ráð fyrir því að reiðgólf hallarinnar verið tilbúið til notkunar í janúar 2024, þó áfram verði unnið í öðrum hlutum verksins.

Ný reiðhöll mun gjörbreyta öllu hjá félaginu okkar og vonandi líka fyrir mótahald innandyra á höfuðborgarsvæðinu því gert er ráð fyrir því að knapar geti hitað upp í gömlu höllinni og riðið síðan beint inn í nýju höllina til keppni og jafnvel leggja hesta á skeið frá gömlu reiðhöllinni um tengibygginguna inn í nýju reiðhöllina.

Sörlastaðir og vallarsvæðið okkar er sérstakt á landsvísu og þekkja það allir sem hafa komið og fylgst með mótum og kynbótasýningum, hve gaman er að sitja þar í góðum félagskap og fylgjast með frá 2. hæð núverandi hallar. Nýja byggingin mun færa okkur enn nær vellinum og stærri og fleiri gluggar munu enn auka á þennan frábæra möguleika. Hugmynd hönnuða og okkar í Sörla var að láta inni- og útiáhorfendaaðstöðu renna saman og verður hægt að ganga þaðan út á hellulagða stétt ofan við nýja áhorfendabrekku við völlinn.

Við vitum að tilkoma þessarar byggingar mun hjálpa félaginu að bjóða upp á enn betra starf í uppbyggingu barna- og nýliðunarstarfsins og auka möguleika á kennslu og föstum æfingum fyrir félagsmenn  Sörla og keppnis- og afreksfólkið okkar fær loks glæsilega inniaðstöðu til æfinga.

Örfáar lausar hesthúslóðir er til á svæðinu samkvæmt gildandi deiliskipulagi, þetta eru reyndar síðustu lóðirnar sem í boði verða á svæði Sörla og ekki auðvelt að sjá að hægt verði að bæta við síðar. Því er um að gera fyrir áhugasama aðila að tryggja sér lóð og byggja sér nýtt hesthús á okkar frábæra félags- og útreiðasvæði.

Áfram Sörli

Tölvugerð mynd Kanon Arkitektar
Tölvugerð mynd Kanon Arkitektar
Tölvugerð mynd Kanon Arkitektar
Tölvugerð mynd Kanon Arkitektar
Tölvugerð mynd Kanon Arkitektar