Síðasti skráningardagur í dag 17. jan á Sportfengsnámskeiðið 20. janúar

Á vegum LH 

Mánudaginn 20. janúar verður haldið Sportfengsnámskeið fyrir mótshaldara.

Námskeiðið er frítt, fer fram á teams og þurfa áhugasamir að skrá sig fyrir 17. janúar. Linkur verður sendur á alla skráða þátttakendur.

Hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á mótamálum og vilja starfa við mót að skrá sig og auka þannig þekkingu sína.

Búast má við að mótahald aukist hjá okkur bæði á keppnisvöllum og í nýrri reiðhöll og þá verður gott að hafa marga með þessa þekkingu.

Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í Sörla.

Hér er hægt að lesa auglýsingu LH í heild sinni og skrá sig á námskeiðið.