Blue Lagoon mótaröðin í Spretti hóf göngu sína á dögunum.
Mótaröðin er byggð upp á nokkrum mótum í mismunandi greinum og keppt er í yngri flokkum, Barna- unglinga- og ungmennaflokki.
Á fyrsta mótinu var keppt í tölti og Sörlafélagar áttu nokkra fulltrúa á mótinu.
Í barnaflokki var Árný Sara Hinriksdóttir fulltrúi okkar Sörlamanna í T7 á Glettingi frá Efri-Skálateigi og hún gerði sér lítið fyrir og sigraði flokkinn.
Í unglingaflokki T3 tóku Helga Rakel Sigurðardóttir, Júlía Björg Gabaj Knudsen og Bjarndís Rut Ragnarsdóttir þátt. Helga Rakel fór beinustu leið í úrslit og endaði þar í 6 sæti á henni Glettu frá Tunguhlíð.
Í ungmennaflokki voru Sigríður Inga Ólafsdóttir, Bryndís Ösp Ólafsdóttir og Brynhildur Gígja Ingvarsdóttir á meðal þátttakenda. Brynhildur og Diddi frá Þorkelshóli 2 komust í úrslit mótsins og enduðu í 5. Sæti.
Næsta mót í Blue Lagoon mótaröðinni er fjórgangur þann 20 febrúar næstkomandi og við fylgjumst spennt með okkar fólki þar.
Áfram Sörli